Keflvíkingar styrkja hópinn – Stefnan sett á Pepsí-deildina

Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur samið við tvo leikmenn sem munu spila með meistaraflokki kvenna í sumar en það eru þær Amber Pennybaker og Lauren Watson.
Amber spilaði 20 leiki í deild, bikar og úrslitum með Keflavík á síðasta ári og skoraði í þeim sjö mörk. Lauren sem er markmaður kemur frá Woodlands í Texas en þar spilað hún með Woodlands High School og síðan með Texas Tech University.
Í tilkynningu frá Keflavík kemur fram að bundnar séu miklar vonir við þær stöllur í baráttunni við að komast upp í Pepsi-deildina á næsta ári.