Frítt í söfnin í sumar
![duus](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/10/duus.jpg?resize=620%2C264)
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur tekið þá ákvörðun að boðið verði upp á ókeypis aðgang í Rokksafn Íslands og Duus Safnahús, menningar og listamiðstöð Reykjanesbæjar frá 1.júní – 31.ágúst. Er þessi ákvörðun tekin sem liður í að bjóða Íslendinga velkomna til Reykjanesbæjar á ferðum sínum um landið í sumar.
Reykjanesbær er frábær áfangastaður og tilvalinn til bæði dagsferða og lengri ferða. Uppskrift að góðum degi væri t.d. að fara frítt á söfnin, heimsækja Skessuna í hellinum, fara frisbiegolf, smella sér í Vatnaveröld, fá sér ís eða máltíð á veitingastað, kíkja í búðir og þannig mætti áfram telja, segir á vef sveitarfélagsins.