Nýjast á Local Suðurnes

Ungir ökumenn á hraðferð sviptir ökuréttindum

Átta ökumenn hafa verið kærðir fyrir hraðakstur á síðustu dögum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Sá sem hraðast ók mældist á 144 km hraða á Sandgerðisvegi þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Ökumaðurinn hafði ekki náð 18 ára aldri og var farið með mál hans samkvæmt því, segir í tilkynningu frá Lögreglu.

Annar ökumaður sem ók á meira en tvöföldum hámarkshraða, eða 110 km/h þar sem hámarkshraði er 50 km á klukkustund. Sá var einnig undir 18 ára aldri. Hann var sviptur ökurétti til bráðabirgða, auk annarra viðurlaga.

Þá hafði lögregla afskipti af þremur ökumönnum til viðbótar vegna gruns um fíkniefnaakstur. Einn þeirra ók sviptur ökuréttindum og hafði lögregla nokkrum sinnum haft afskipti af honum áður af þeim sökum.