Nýjast á Local Suðurnes

Idolið tekið upp að hluta í Hljómahöll – Myndir!

Nýjasta sjónvarpsþáttaröðin af IDOL Stjörnuleit sem Stöð 2 hefur framleitt undanfarin ár var að hluta til tekin upp í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ.

Stöðvar 2 fólk lagði undir sig nánast alla Hljómahöll í tæplega viku í októbermánuði síðastliðnum, segir á Facebook-síðu Reykjanesbæjar.

Upptökur fóru aðallega fram í Stapa og Rokksafni Íslands en sá hluti þáttaraðarinnar sem tekinn er upp í Hljómahöll fer í sýningu á næstunni.

Dómarar þáttanna eru þau Birgitta Haukdal, Daníel Ágúst, Bríet og Hr. Hnetusmjör. Kynnar eru Aron Már Ólafsson (Aron Mola) og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir.

https://www.visir.is/k/54d32319-1713-45f0-a1d6-1f6ab9e4cb5a-1701092836885/daniel-agust-taradist