Nýjast á Local Suðurnes

Bjóða Grindvíkingum til skötuveislu

Þórláksmessuskata Grindvíkinga verður haldin í Samkomuhúsinu í Sandgerði næstkomandi laugardag, 16. desember frá klukkan 11.00 til 14.00. Grindvíkingum sem eiga þess kost að mæta er boðið til veislunnar.

Þetta kemur fram á fésbókarsíðu Ásmundar Friðrikssonar, alþingismanns, þar segir að boðið verði upp á kæsta og saltaða skötu, saltfisk og plokkfisk með kartöflum, rófum, hamsatólg, rúgbrauð og kaffi. Undir borðum leika Harmonikkuunnendur á Suðurnesjum.