Nýjast á Local Suðurnes

Mugison í Hljómahöll – Takmarkað magn miða

Tónlistarmanninn Mugison kemur fram á tónleikum í Bergi í Hljómahöll þann 14. nóvember. Hann verður einn á tónleikunum með gítarinn og lofar góðu sprelli, eins og honum einum er lagið.

Mugison hefur sama og ekkert spilað á Suðurnesjum síðan 2011 og enn lengra síðan að hann hefur komið einn fram á tónleikum með gítarinn.

Mugison gaf síðast út plötuna Haglél sem setti sölumet árið 2011 og seldist í tugþúsundatali. Platan var sú fyrsta hjá honum sem var alfarið sungin á íslensku. Afrek hans eru óteljandi en á meðal þess sem hann hefur gert í gegnum tíðina er að standa fyrir tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði sem haldin er hverja páska, hefur spilað á einum stærstu tónlistarhátíðum heims s.s. Hróarskeldu, verið valinn Vestfirðingur ársins oftar en einu sinni og þannig mætti lengi telja.

Það ætti enginn tónlistarunnandi að láta þessa kvöldstund framhjá sér fara. Afar takmarkað miðaframboð er á þessa tónleika, segir í tilkynningu frá Hljómahöll.