21% fjölgun farþega hjá Icelandair

221 þúsund farþegar flugu með Icelandair í millilandaflugi í mars og voru þeir 21% fleiri en á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 20%. Sætanýting var 84% og jókst um 1,4 prósentustig á milli ára og hefur aldrei verið hærri í mars.
Seldir blokktímar í leiguflugi jukust þá um 8% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 1% frá því á síðasta ári. Þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins.