Krónan lokar fyrr vegna landsleiks
Fjölmörgum fyrirtækjum var lokað snemma fyrir síðasta leik landsliðsins í riðlakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu gegn Austurríki, bönkum, tryggingafélögum og verslunum var lokað rétt fyrir klukkan fjögur. Leikur Íslands og Englands er á aðeins skárri tíma, viðskiptalega séð, en hann hefst klukkan 19 í kvöld.
Verslunarkeðjan Krónan, sem meðal annars rekur eina verslun á Suðurnesjum hefur ákveðið að loka snemma í kvöld, eða klukkan 19. Verslanir Krónunnar eru alla jafna opnar til klukkan 21 á virkum dögum.
“Það er mikil stemmning í landinu og við erum stemmningsfyrirtæki. Við ætlum því bara að hafa gaman af þessu og njóta,“ segir Kristinn Skúlason, rekstrarstjóri Krónunnar í spalli við mbl.is.