Leikjum Keflavíkur og Njarðvíkur í Powerade-bikarnum frestað til morguns
![körfubolti](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/06/körfubolti.jpg?resize=620%2C264)
Vegna ofsaveðursins sem á að ganga yfir landið seinni partinn í dag og í kvöld er búið að fresta bikarleikjum kvöldsins en leika átti í Powerade-bikar karla.
Nýr leikdagur leikjanna er á morgun þriðjudag kl. 19.15.
8. desember Keflavík-Valur kl. 19.15
8. desember Hamar-Njarðvík kl. 19.15