Nýjast á Local Suðurnes

Reykjanesbraut verður lokað kl. 18 í dag og Suðurstrandavegi kl. 15

Mynd: Björgunarsveitin Þorbjörn

Í samráði við Lögregluna og björgunarsveitir hefur verið ákveðið að loka mjög mörgum vegaköflum vegna óveðursins sem kemur síðar í dag mánudag 7. desember. Ljóst er að ekkert ferðaveður verður og því öruggara að loka vegum áður en í óefni stefnir, segir á heimasíðu Vegagerðarinnar.

Samkvæmt heimasíðunni verður Suðurstrandavegi lokað klukkan 15 í dag og Reykjanesbraut klukkan 18. Hægt er að fylgjast með tilkynningum Vegagerðarinnar hér.