Nýjast á Local Suðurnes

Stofnanir Reykjanesbæjar loka kl. 18 og strætóferðir falla niður

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu vegna storms sem spáð hefur verið um allt land í dag, 7. desember. Vegna veðurs í dag eru íbúar sem nýta sér Strætó, beðnir um að fylgjast með á heimasíðu Strætó bs. Ef að ferðir falla niður hjá Leið 55 þá falla þær einnig niður á Suðurnesjum.

Á fundi Almannavarnarnefndar í hádeginu var ákveðið að loka öllum stofnunum í Reykjanesbæ kl. 18 í kvöld, þetta á einnig við um strætó.