Nýjast á Local Suðurnes

Fyrsta smitið staðfest á Suðurnesjum – Fækkar í sóttkví

Fyrsta kórónuveirusmitið hefur verið staðfest á Suðurnesjum. Þetta má sjá á vef Embættis landlæknis og Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, covid.is, en þar má meðal annars finna tölfræði, góð ráð og ýmsar upplýsingar vegna Covid-19.

Á vefnum má einnig sjá að einstaklingum í sóttkví á Suðurnesjum hefur fækkað á milli daga, en nú eru 19 einstaklingar skráðir í sóttkví, en undanfarna daga hafa 21 einstaklingur verið í sóttkví.