Nýjast á Local Suðurnes

Þurfa aukinn mannskap vegna flóttafólks frá Úkraínu

Óskað hefur verið eftir heimild að ráða tímabundið í stöðugildi á velferðar- og fræðslusviðu Reykjanesbæjar til að unnt verði að sinna þjónustu í samræmi við þjónustusamning um móttöku, aðstoð og þjónustu við flóttafólk.

Þetta kemur til þar sem bregðast þarf við auknum flóttamannastraumi frá Úkraínu. Gert er ráð fyrir að ráða þrjá starfsmenn tímabundið.

Bæjarráð sveitarfélagsins ræddi málið á síðasta fundi sínum og tekur jákvætt í erindið og felur Heru Ó. Einarsdóttur sviðsstjóra velferðarsviðs og Helga Arnarssyni sviðsstjóra fræðslusviðs að vinna áfram í málinu.