Nýjast á Local Suðurnes

Bæjarráð Voga: Samstarfið við björgunarsveitina hefur til þessa gengið vel

Bergur Álfþórsson formaður bæjarráðs Voga segir að samstarf sveitarfélagsins og björgunarsveitinnar hafi til þessa gengið vel og án hnökra, eða þar til niðurstöður síðustu sveitarstjórnakosninga lágu fyrir, en þá hafi formaður björgunarsveitarinnar, Kristinn Björgvinsson misst sæti sitt sem formaður bæjarráðs. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá meirihluta bæjarráðs Voga.

Þá segir ennfremur í yfirlýsingunni að það sé einlægur vilji bæjarráðs að á komist eðlileg samskipti og samningur milli Bjsv. Skyggnis og Sveitarfélagsins Voga.

Yfirlýsinguna má finna í heild sinni hér fyrir neðan:

Í maí 2014 afgreiddi frístunda og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga frá sér drög að samningi við Björgunarsveitina Skyggni til afgreiðslu í bæjarráði. Drögin innihéldu viðaukasamning þar sem kveðið var á um „styrkupphæðir“ sem voru sundurliðaðar svo:

Flugeldasýningar 2 x 400.000.-
Unglingastarf 2 x 250.000.-
Almennur styrkur 2 x 500.000.-
Þessar upphæðir kæmu til greiðslu 10. Janúar og 10. Ágúst.

Að auki var ákvæði um kr 4.000.000.- styrk til byggingaframkvæmda og tækjakaupa.
Þessum samningi var að endingu vísað til bæjarstjórnar, aftur til bæjarráðs og þaðan til frekari vinnslu bæjarstjóra.

Niðurstaðan var sú að eftir langa mæðu náðist niðurstaða sem kvað á um að styrkur ársins 2015 yrði kr. 2.060.000.- og skilningur að sá styrkur tæki til: flugeldasýningar á þrettándann, gæslu á fjölskyldudögum og flugeldasýningar á fjölskyldudögum, umsjón með áramótabrennu og niðurfellingar fasteignagjalda.

Við vinnu vegna fjárhagsáætlunar ársins 2016 var ákveðið að setja kr. 2.060.000.- sem framlag til björgunarsveitarinnar og bæjarstjóra falið að ganga til samninga þar að lútandi, en viðbrögð björgunarsveitarinnar voru þau að styrkupphæðin væri ekki nógu há miðað við vinnuframlag sveitarinnar.

Nýtt tilboð til björgunarsveitarinnar var að upphæðin yrði óbreytt, en ekki yrði um flugeldasýningu að ræða á þrettándann, og þannig hækkaði beinn peningastyrkur til björgunarsveitarinnar um sem nemur andvirði flugeldasýningarinnar eða kr. 400.000.- þar sem formaður Skyggnis hefur margoft lýst því yfir að styrkupphæðir vegna sýninganna sé einungis fyrir kostnaði.

Formaður björgunarsveitarinnar hefur látið hafa eftir sér að þeir séu þreyttir á að vera notaðir sem ódýrt vinnuafl, og er rétt að benda á að bæði kvenfélagið í sveitarfélaginu og Lionsklúbburinn hafa staðið að jólaballi, þrettándaskemmtun og brennu auk þess að taka þátt í fjölskyldudögum án þess að hafa farið fram á eða fengið styrki vegna þess.

Í umræðunni hafa verið bornir saman styrkir til björgunarsveitarinnar og íþróttafélaga í sveitarfélaginu, hér að neðan eru upphæðir síðustu ára.

2013 2014 2015 2016
UMFÞ 3.200.000.- 4.000.000.- 3.500.000.- 3.750.000.-
Mfl. Þróttar 1.000.000.- 2.000.000.- 1.750.000.- 2.000.000.-

Samstarf sveitarfélagsins og björgunarsveitinnar hefur til þessa gengið vel og án hnökra þar til niðurstöður síðustu sveitarstjórnakosninga lágu fyrir. Formaður sveitarinnar, Kristinn Björgvinsson, virðist ekki hafa látið þess getið við fjölmiðla að hann var formaður bæjarráðs frá október 2011 til loka kjörtímabilsins. Þann tíma virðist björgunarsveitin sátt við framlag sveitarsjóðs þrátt fyrir að það væri umtalsvert lægra en nú er um að ræða þ.e. 1.395.000 árið 2012 og 830.000.- árið 2013.!

Ekki mun öllum kunnugt að Kristinn Björgvinsson er kjörinn bæjarfulltrúi og áheyrnarfulltrúi í bæjarráði Sveitarfélagsins Voga, enda örugglega ekki á allra vitorði þar sem hann hefur ekki séð sér fært að mæta á einn einasta fund bæjarstjórnar eða bæjarráðs frá upphafi yfirstandandi kjörtímabils og afstaða formanns björgunarsveitarinnar verið sveitarfélaginu afar andsnúin á sama tíma.

Niðurstaðan hlýtur að vera að bæjarfulltrúinn Kristinn Björgvinsson sé að brúka Kristinn Björgvinsson formann Bjsv. Skyggnis í afar annarlegum pólitískum tilgangi.

Það er ómetanlegt hverju samfélagi að í þeim starfi öflug félagasamtök og ekki sýst öflug björgunarsveit og er það einlægur vilji okkar að á komist eðlileg samskipti og samningur milli Bjsv. Skyggnis og Sveitarfélagsins Voga.

Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga
Bergur Álfþórsson, E-lista
Björn Sæbjörnsson, D-lista
Ingþór Guðmundsson, E-lista