Nýjast á Local Suðurnes

Hörður Axel klárar tímabilið með Keflavík – “Svo lengi sem þjálf­ar­inn vel­ur mig í liðið”

Hörður Axel átti fínan leik og skoraði 18 stig

Hörður Axel Vilhjálmsson mun spila með körfuknattleiksliði Keflavíkur út tímabilið, hann tilkynnti nú fyrir stuttu að hann væri á leið heim á facebook síðu sinni. Hann kemur frá Limburg United í Belgíu en hann hafði samið við Keflavík fyrr í sumar..

„Ég klára tíma­bilið með Kefla­vík. Ég spila á föstu­dag­inn svo lengi sem þjálf­ar­inn vel­ur mig í liðið. Ég hef ekki náð einni æf­ingu. Byrj­um á henni. Ég er spennt­ur fyr­ir því að spila heima. Mér fannst það mjög gam­an þessa tvo leiki sem ég náði í haust,“ sagði Hörður við mbl.is.

Hörður Axel samdi við Keflavík til fjögurra ára í sumar áður en hann hélt aftur í atvinnumennsku, og ljóst er að kappinn mun styrkja liðið mikið..