Skólahald með óbreyttum hætti
Skipulag skólahalds hefur almennt gengið vel á Suðurnesjum eftir að samkomubann var sett á og verður skólahald því með óbreyttum hætti fram að páskafríi sem hefst þann 6. apríl næstkomandi.
Flestir grunnskólar á Suðurnesjum hafa sent frá sér tilkynningar varðandi þetta og flestir greina frá því að kennarar muni vera í sambandi við foreldra varðandi tilhögun næstu viku.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðum skólanna sem finna má hér fyrir neðan:
Akurskóli, Heiðarskóli, Holtaskóli, Háaleitisskóli, Myllubakkaskóli, Njarðvíkurskóli, Stapaskóli
Heimasíður grunnskólanna í Suðurnesjabæ:
Sandgerdisskoli.is, Gerðaskóli
Heimasíða grunnskólans í Grindavík
Heimasíða grunnskólans í Vogum