Nýjast á Local Suðurnes

Lögregla leitar að bifreiðinni LU-M91

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir bifreiðinni LUM91 sem er grár  Volkswagen Golf, árgerð 2016, en bifreiðin var tekin ófrjálsri hendi 19. desember síðastliðinn frá starfsstöð bílaleigu á Keflavíkurflugvelli.

Þeir sem geta gefið upplýsingar hvar bifreiðin er niðurkomin vinsamlegast hafið samband við Lögregluna á Suðurnesjum í síma: 444 – 2200.