Nýjast á Local Suðurnes

Ný gata í miðbænum – Svona mun Skólatorg líta út!

Ný gata verður mynduð í miðbæ Reykjanesbæjar, gangi tillögur JeES Arkitekta eftir. Gatan verður mynduð af bæjarlandi milli baklóða Suðurgötu og Hafnargötu, nýja gatan er með aðkomu frá Skólavegi og Hafnargötu.

Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt nafn á hina nýju götu, Skólatorg, en hér fyrir neðan má sjá tölvugerðar myndir af breyttu svæði.