Nýjast á Local Suðurnes

Keilir eykur námsframboð – Nám í fótaaðgerðafræðum hjá Keili

Keilir festi nýverið kaup á öllum tækjum og búnaði Fótaaðgeraðskólans sem hefur starfað undanfarin ár í Snyrtiakademíunni í Kópavogi. Stefnt verður að því að taka inn fyrstu nemendur í námið á komandi hausti en einungis verður tekið við tíu nemendum í hvert skipti.

Fótaaðgerðarnámið hjá Keili er hið eina sinnar tegundar á landinu en mikil og aukin þörf er fyrir sérfræðinga á þessu sviði einkum vegna hækkandi meðalaldurs þjóðarinnar og vaxandi íþróttaiðkunnar almennings. Um er að ræða hagnýtt og spennandi námstækifæri fyrir dugmikið fólk með mikla atvinnumöguleika.

Námið er á framhaldsskólastigi og verður kennt í aðstöðu Keilis á Ásbrú og eru örar strætóferðir milli Höfuðborgarsvæðisins og Reykjanesbæjar. Þá hafa nemendur aðgang að ódýrum nemendaíbúðum á svæðinu.

Fótaaðgerðarnám er viðurkennt af menntamálaráðuneytinu og lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Að loknu náminu geta nemendur sótt um löggildingu sem fótaaðgerðarfræðingar.