Nýjast á Local Suðurnes

Óþægilegu hlutar fjármálanna

Fjármál geta verið óþægileg og flókin fyrir þá sem hugsa ekki reglulega um þau. Þegar við höfum litla eða enga yfirsýn þá finnum við fyrir þessu þegar fjármálin verða flóknari en á venjulegum degi. Þá er líklegara að við veljum að forðast fjármálin.

haukur hilmarsson fjarmal

Haukur Hilmarsson

Tökum sem dæmi að við eigum nokkra ógreidda reikninga. Ef við borgum þá núna þá eigum við lítinn pening eftir og þá minnka tækifærin á að fá þau lífsgæði sem okkur langar í. Þá gætum við ekki farið í bíó, borðað góðan mat eða keypt  nammi. Við gætum ekki keypt föt þegar við viljum. Okkur líður eins og við höfum misst lífsgæðin sem gefi okkur tilgang og stöðu í vinahópnum. Í þessari stöðu er upplifunin að geta ekkert (vera blankur) óþægilegri en upplifunin að skulda reikninga. Við missum möguleikan á lífsgæðunum strax en óþægindi vegna ógreiddra reikninga verða ekki fyrr en seinna. Þess vegna viljum við fresta því að borga reikningana. Við viljum vera örugg og ekki blönk og styðja þannig við öryggistilfinninguna í dag.

Vandi okkar er að við ruglum saman raunverulegu fjárhagslegu öryggi (allir reikningar greiddir) og tilfinningunni um fjárhagslegt öryggi (geta notað pening). Hið fyrra er fjárhagslegt en hið seinna er tilfinningalegt.

Að tilheyra er eins og hamingjan. Það þarf ekki að kosta neitt að tilheyra. Einfaldir hlutir eins og samtal við vin getur fært þér tilfinningu um að tilheyra. Jafnvel bara símtal. Samskipti við aðra er grunnþörf okkar í að tilheyra. Finndu þínar eigin hugmyndir um að tilheyra án þess að það kosti um of. Gætir þú átt sömu vini þótt þú seldir dýra bílinn þinn? Ættir þú sömu vini þótt þú værir í ódýrari, jafnvel notuðum fötum? Mun maki þinn og fjölskylda elska þig jafn mikið ef þú útbýrð kvöldverð heima í stað þess að kaupa skyndibita?

Á meðan við náum ekki endum saman þá munum við halda áfram að velja á milli þess að greiða reikninga á réttum tíma eða að eiga pening til að finna öryggi. Til að ná endum saman er lausnin að skrá niður allt sem við gerum við peingana okkar og setja okkur síðan markmið um hvað peningurinn á að gera fyrir okkur. Til dæmis hvort peningurinn á að fara í reikninga eða önnur lífsgæði. Á heimasíðunni www.skuldlaus.is hef ég sett upp einfalt heimilisbókhald sem margir nota til að fá góða yfirsýn og umfram allt finna öryggi.

Ekki geyma það að bæta fjármálin.