Nýjast á Local Suðurnes

Farbannsmaður bókaði flugmiða í gegnum teitismann með stolnum kortum

Erlendur karlmaður sætir nú farbanni til 24. október næstkomandi vegna gruns um misnotkun greiðslukorta við kaup á flugmiðum.

Maðurinn kom til landsins í fyrradag og handtók lögreglan á Suðurnesjum hann og vistaði á lögreglustöð. Maðurinn kvaðst hafa hitt karlmann í teiti sem hefði tjáð sér að hann starfaði hjá fyrirtæki sem gæti útvegað afslátt á flugmiðum.  Farbannsmaðurinn bókaði svo miða í gegnum teitismanninn að eigin sögn.

Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið.