Grunnskólanemar gáfu góða gjöf
Nemendur í 7. bekk Gerðaskóla héldu tombólu á dögunum og gáfu skammtímavistuninni Heiðarholti andvirðið eða 34.659.krónur.
Við þetta tækifæri var smellt mynd af hópnum og nemendum færðar bestu þakkir fyrir gjöfina sem á eftir að koma sér vel en ætlunin er að kaupa spjaldtölvu sem hægt er að nýta í starfi Heiðarholts.