Nýjast á Local Suðurnes

Glæsilegt tæplega 200 milljóna einbýli komið á sölu – Sjáðu myndirnar!

Stórglæsilegt og einstaklega vandað tæplega 350 fermetra einbýlishús við Baugholt í Reykjanesbæ er auglýst til sölu á fasteignavef Vísis. Ásett verð er 182.500.000 og er húsið í einkasölu.

Eignin er sex hebergja með stórum bílskúr og stendur á einni af stærri lóðum Reykjanesbæjar. Samkvæmt lýsingu hefur húsinu verið afar vel viðhaldið og gerðar töluverðar endurbætur.