Nýjast á Local Suðurnes

Tekinn með mikið magn af amfetamínvökva í gjafapakkningu

Lögreglan á Suðurnesjum vinnur nú að rannsókn á máli sem upp kom fyrr í mánuðinum þegar karlmaður á fimmtugsaldri var stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar með 900 millilítra af amfetamínvöka í farangrinum. Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði för mannsins  við komu hans til landsins frá Póllandi.

Amfetamínvökvinn var í flösku sem hann hafði búið um í gjafaumbúðum. Maðurinn, sem var handtekinn í kjölfarið, er af erlendu bergi brotinn en með lögheimili á Íslandi.  Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald í þágu rannsóknar málsins.

Færst hefur í aukana að reynt sé að flytja inn amfetamínbasa og gerir lögreglan ráð fyrir því að hann sé svo unnin er frekar hér á landi.  Miðað við niðurstöður úr rannsóknum Háskóla Íslands í þeim tilfellum sem lagt hefur verið hald á amfetamínbasa er hægt útbúa þrefalt það magn eða 2,7 kíló af amfetamíni.  Rannsóknardeild lögreglustjórans á Suðurnesjum vinnur að rannsókn málsins sem fyrr sagði. Rannsókninni miðar vel og hinn grunaði laus úr gæsluvarðhaldi.