Nýjast á Local Suðurnes

Skipulagsdagur í grunnskólum vegna hertra sóttvarnaráðstafana

Vegna hertra sóttvarnaráðstafana í grunnskólum landsins verður mánudagurinn 2. nóvember notaður til að skipuleggja starfið með kennurum og öðru starfsfólki í grunnskólum Reykjanesbæjar.

Grunnskólabörn eiga því ekki að mæta í skólann mánudaginn 2. nóvember en nánari upplýsingar um skólastarfið verða sendar frá skólunum til foreldra og forráðamanna um áframhald skólastarfsins. Skóla- og frístundastarf mun hefjast aftur með breyttu sniði þriðjudaginn 3. nóvember.