Nýjast á Local Suðurnes

Söfn og skessa færast á netið

ljósi hertra samkomutakmarkana, þar sem einungis er gert ráð fyrir að 10 manns megi koma saman munu Bókasafn Reykjanesbæjar, Duus Safnahús og Rokksafn Íslands loka á meðan takmarkanirnar gilda. Lokanir taka gildi á morgun, laugardag 31. október, og gert er ráð fyrir að þær gildi til og með 17. nóvember nema ef breytingar verða á reglum. Áfram verður hægt að skila bókum í bókalúgu á Bókasafni og ekki verður sektað fyrir bækur sem hafa skiladag á umræddu tímabili.

Á meðan þessu stendur eru íbúar hvattir til að fylgjast með starfsemi safnanna á vef- og samfélagsmiðlum þeirra en bókasafn, byggðasafn, listasafn, rokksafn og Skessan í hellinum munu öll leita leiða til að halda uppi rafrænni starfsemi á meðan aðrar leiðir eru ekki færar.