Öll verkefni lögreglu á samfélagsmiðlana

Næstkomandi laugardag, 16. desember, fer fram Twitter-maraþon lögreglunnar, svokallað “Löggutíst”. Í löggutístinu munu Lögreglan á Norðurlandi eystra, Lögreglan á Suðurnesjum og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu nota samfélagsmiðilinn Twitter til að segja frá öllum verkefnum sem koma á borð þessara lögregluliða frá því klukkan 16 til klukkan 04 á sunnudagsmorguninn.
Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að tilgangur viðburðarins sé að gefa almenningi innsýn í störf lögreglu með því að fylgjast með útköllum sem henni berast, fjölda þeirra og hversu margvísleg þau eru.
Á meðan viðburðinum stendur munu embættin nota #-merkið #löggutíst til að merkja skilaboðin.
Lögreglan á Norðurlandi eystra mun tísta frá sínum notendaaðgangi: @logreglanNE – eða á www.twitter.com/logreglanNE
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun tísta frá sínum notendaaðgangi: @logreglan – eða á www.twitter.com/logreglan
Lögreglan á Suðurnesjum mun tísta frá sínum notendaaðgangi: @sudurnespolice – eða á https://twitter.com/sudurnespolice
Þá kemur fram í tilkynningunna að lögreglumenn muni jafnvel skella í beinar útsendingar í gegnum Facebook-live ef svo beri undir.