Njarðvík fær nýjan þjálfara
Samingur Einars Árna Jóhannssonar, sem þjálfað hefur meistaraflokkslið Njarðvíkur í körfuknattleik, er á enda og hefur stjórn deildarinnar ákveðið að framlengja ekki samstarfinu og leita á önnur mið fyrir komandi tímabil.
Einar Árni er einn af okkar fremstu þjálfurum á landinu og hefur hann um árabil sett mark sitt á körfuboltasögu félagsins. Það voru vissulega vonbrigði að ná ekki inn í úrslitakeppnina þetta tímabilið en leiktíðin var býsna snúin að þessu sinni sökum heimsfaraldurs COVID-19, segir í tilkynningu.
Þar segir jafnframt að stjórn deildarinnar óski Einari Árna velfarnaðar í sínum störfum og hefur það verið mikill heiður að starfa með Einari sem er einkar faglegur og reyndur þjálfari. Með þökk fyrir samstarfið.
Mynd: UMFN.is / JBÓ