Nýjast á Local Suðurnes

Búist við fjölda fólks á Ljósanótt – Þöglir um þátttöku sérsveitar við gæslu

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Hvorki Ríkislögreglustjóri né Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafa svarað ítrekuðum fyrirspurnum Suðurnes.net varðandi þátttöku sérsveitar Ríkislögreglusstjóra við gæslu í tengslum við hátíðarhöld Ljósnætur. Sérsveitarmenn aðstoðuðu lögregluna í Vestmannaeyjum við gæslu á Þjóðhátíð fyrr í mánuðinum, auk þess sem vopnum búnir sérsveitarmenn aðstoðuðu lögregluna í Reykjavík við gæslu á Litahlaupinu og Gay pride.

Búist er við töluverðum fjölda manns á kvölddagskrá Ljósanætur á laugardagskvöld, en þá fara meðal annars fram útitónleikar auk þess sem flugeldasýning Ljósanætur trekkir jafnan að fjölda fólks.