Nýjast á Local Suðurnes

Mikil uppbygging fyrirhuguð við Reykjanesvita – Vilt þú taka þátt?

Reykjanes UNESCO Global Geopark og Reykjanesbær hafa undanfarin ár unnið að gerð deiliskipulags fyrir Reykjanesvita og nágrenni. Skipulagið var samþykkt í janúar 2016 og gerir ráð fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu á hverfisvernduðu svæði. Reykjanesviti og nágrenni hafa mikið aðdráttarafl. Áætlað er að um 200.000 gestir hafi heimsótt svæðið á árinu 2015. Með bættu aðgengi ásamt skipulagðri og markvissri uppbyggingu þar og í næsta nágrenni getur svæðið tekið við mun fleiri gestum.

Í nágrenni Reykjanesvita er fyrirhuguð mikil uppbygging í ferðaþjónustu en fyrir eru staðir sem njóta mikilla vinsælda meðal ferðamanna s.s. Brú milli heimsálfa, Gunnuhver og Brimketill.

Stjórn Reykjanes UNESCO Global Geopark auglýsir nú eftir áhugasömum aðilum sem tilbúnir eru að ganga til verks og hefja uppbyggingu á umræddu svæði. Áhugasömum aðilum er bent á að senda inn tillögur á netfangið info@reykjanesgeopark.is fyrir 26. febrúar 2016.

Lýsa þarf í stuttu máli áformum um gerð og umfang uppbyggingar, starfsemi og uppbyggingarhraða. Gæta þarf samræmis við deiliskipulag frá janúar 2016.

Leiðarljós við mat á tillögum verður hve mikil jákvæð áhrif ætla má að tillagan hafi fyrir umhverfi, náttúru og mannlíf á svæðinu. Auk þess sem litið verður til fjárhagslegs og faglegs styrks til þess að ljúka uppbyggingu svæðisins.

Fyrirspurnum ber að beina skriflega til Eggert Sólbergs Jónssonar forstöðumanns Reykjanes UNESCO Global Geopark, eggert@reykjanesgeopark.is.

Aðilum sem tilkynna áhuga verður greint frá vali þeirra sem falið verður að útfæra hugmyndir nánar eigi síðar en 10. mars 2016.

Deiliskipulag fyrir Reykjanesvita og nágrenni