Nokkrar minniháttar breytingar þegar vetraráætlun tekur gildi
![straeto](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/08/seat-349817_1280.jpg?resize=620%2C264)
Mánudaginn 17. ágúst hefst vetraráætlun almenningsvagna í Reykjanesbæ og verða nokkrar minniháttar breytingar á kerfinu .
Ekki verður ekið á sunnudögum en talningar hafa sýnt að notkun á strætó á þeim vikudegi er mjög lítil og ekki þörf á þeim akstri í því kerfi sem nú er í notkun. Þá hafa talningar sýnt að ferðir eftir kl. 22:00 á kvöldin eru nánast ekkert nýttar og í vetraráætlun er gert ráð fyrir að öllum akstri sé hætt eigi síðar en kl. 22.00. Þriðja breytingin verður sú að leið R1 mun aka inn Hjallaveg í stað þess að fara áfram Njarðarbraut.
Ekki verða fleiri breytingar á kerfinu utan þeirra sem hér hefur verið gerð grein fyrir en Reykjanesbær hefur sett saman stýrihóp til að vinna að framtíðarleiðakerfi almenningsvagna í Reykjanesbæ og er sú vinna hafin. Upplýsingar um tímatöflur og akstursleiðir má finna á heimasíðu Strætó