Nýjast á Local Suðurnes

Oddur V. Gíslason kominn með skútuna í tog – Skipverjar úrvinda af þreytu

Myndin tengist fréttinni ekki beint - Mynd: Landsbjörg

Björgunarskipið Oddur V. Gíslason úr Grindavík er nú komið með erlenda skútu, sem var vélarvana og með ónýtt segl utan Grindavíkur í tog.

Þegar björgunarskipið kom á þann stað sem talið var að skútan væri var hana hvergi að sjá. Í ljós kom að hana hafði rekið töluverða leið. Því tók það björgunarskipið lengri tíma en áætlað var að komast á staðinn. Búið var að koma taug í skútuna um 22:15. Samkvæmt upplýsingum frá björgunarskipinu eru allir skipverjar heilir en algerlega úrvinda segir í tilkynningu frá Landsbjörg

Gert er ráð fyrir að björgunarskipið komi með skútuna til hafnar í Grindavík á öðrum tímanum í nótt.