sudurnes.net
Oddur V. Gíslason kominn með skútuna í tog - Skipverjar úrvinda af þreytu - Local Sudurnes
Björgunarskipið Oddur V. Gíslason úr Grindavík er nú komið með erlenda skútu, sem var vélarvana og með ónýtt segl utan Grindavíkur í tog. Þegar björgunarskipið kom á þann stað sem talið var að skútan væri var hana hvergi að sjá. Í ljós kom að hana hafði rekið töluverða leið. Því tók það björgunarskipið lengri tíma en áætlað var að komast á staðinn. Búið var að koma taug í skútuna um 22:15. Samkvæmt upplýsingum frá björgunarskipinu eru allir skipverjar heilir en algerlega úrvinda segir í tilkynningu frá Landsbjörg Gert er ráð fyrir að björgunarskipið komi með skútuna til hafnar í Grindavík á öðrum tímanum í nótt. Meira frá SuðurnesjumSjóbjörgunarsveitir á mesta forgangi til móts við flutningaskipMesta tekjuaukning frá stofnun Isavia – Gríðarleg fjölgun farþega um KeflavíkurflugvöllSuðurnesjamenn flykkjast í verslanirFingralangir í flugstöð skömmuðust sín og skiluðu stolinni myndavélReyndu að taka myndir undir pils flugfreyjaYfir 50 viðburðir á dagskrá hjá menningarstofnunum ReykjanesbæjarOlli árekstri og hljóp út í móaStaðbundin hækkun eldsneytisgjalda talin möguleg leið til að flýta vegaframkvæmdumEr atvinnuuppbygging á Suðurnesjum „moldvirði alþingismanna“?Chaz mun leiða nýtt Njarðvíkurlið