Nýjast á Local Suðurnes

Ekkert smit undanfarna fjóra daga – Um 50 í sóttkví

Ekkert nýtt kórónuveirusmit hefur greinst á Suðurnesjum undanfarna fjóra daga eða síðan 14. apríl.  Þá voru 77 einstaklingar sem höfðu smitast af veirunni á Suðurnesjasvæðinu og þannig er það enn, samkvæmt nýjustu tölum á vef Embættis landlæknis og Almannavarna, covid.is.

 Þá hefur töluverður fjöldi Suðurnesjafólks snúið úr sóttkví, en nú sæta 43 einstaklingar sóttkví á svæðinu samkvæmt sama vef, en voru vel á fimmta hundraðið þegar mest var.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja birtir reglulega fréttir af starfseminni á Facebook og eru Suðurnesjamenn eru hvattir til að fylgja HSS á Facebook.