Nýjast á Local Suðurnes

Bjóða bæjarbúum sand og hvetja til hálkuvarna í nærumhverfi

Líkt og undanfarin ár mun Reykjanesbær bjóða bæjarbúum upp á „sand í fötu“ í vetur. Sandi hefur verið komið fyrir á nokkrum stöðum í Reykjanesbæ svo íbúar geti náð sér í sand til að hálkuverja innkeyrslur og sín nærsvæði.

Hægt er að nálgast sand úr sandhrúgum á sex stöðum í Reykjanesbæ, sem merktir eru með rauðum punktum á yfirlitskorti, sem sjá má hér fyrir neðan

  • Á stórbílaplaninu við Heiðarveg
  • Á planinu við Reykjaneshöll
  • Á planinu við leikskólann Holt
  • Á plani “Top of the Rock” Grænásbraut 920 á Ásbrú
  • Á planinu við Unnarsdal
  • Á planinu við félagsheimilið í Höfnum