Nýjast á Local Suðurnes

Ríkið eignast meirihluta í Keili

Ríkissjóður mun leggja 190 milljónir sem hlutafé í menntafyrirtækið Keili á Ásbrú og tekur í þannig við sem meirihlutaeigandi félagsins gegn því að sveitarfélögin á Suðurnesjum leggi einnig til viðbótarhlutafé.

Þetta kemur fram í bréfi frá mennta-og menningarmálaráðuneytinu sem tekið var fyrir á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar í gær, en greint er frá þessu á vef RÚV.

Þar er farið fram á staðfestingu þess að sveitarfélögin á Suðurnesjum séu sameiginlega reiðubúin að leggja til 180 milljónir í viðbótarhlutafé.   Bæjarráð Reykjanesbæjar segir í bókun að það fagni aðkomu ríkisins og taki vel í erindið. Formanni bæjarráðs var í framhaldinu falið að ræða við hin sveitarfélögin á Suðurnesjum um þátttöku í verkefninu.

Þá stendur til að ríkissjóður leggi til 80 milljónir á ári næstu þrjú árin til Flugakademíu Keilis að uppfylltum tilteknum skilyrðum til stuðnings flugnáms í landinu.