Vetraráætlun strætó hefur tekið gildi
Vetraráætlun innanbæjarstrætó tók gildi í dag. Sem fyrr er ekið eftir fjórum leiðum, R1, R2, R3 og R4. Hér má nálgast tímatöflur strætóleiðanna og leiðakerfi. Vakin er athygli á því að leið R4 í Hafnir er pöntunarþjónusta.
Vetraráætlun landsbyggðarstrætó hefur einnig tekið gildi og má nálgast upplýsingar og tímatöflur á vef Strætó.