Nýjast á Local Suðurnes

Hafnaði á vegriði á Reykjanesbraut

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Nokkuð var um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni í beygju og ók framan á bílaleigubifreið. Ekki urðu slys á fólki.

Þá rann bifreið til á vegkafla milli Grindavíkurvegar og Vogavegar með þeim afleiðingum að hún hafnaði á vegriði og stöðvaðist þar. Ökumaður slapp ómeiddur.

Fleiri óhöpp urðu í umferðinni en þau voru minni háttar og engin slys á fólki.