Nýjast á Local Suðurnes

Valtur á fótum greiddi 157.500 króna sekt vegna ölvunaraksturs

Nokkrir ökumenn hafa verið staðnir að vímuefnaakstri á síðustu dögum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Einn þeirra, erlendur ferðamaður, var valtur á fótunum þegar hann gekk að lögreglubifreiðinni til viðræðna við lögreglumenn. Hann viðurkenndi að hafa fengið sér ærlega í staupinu áður en hann settist undir stýri. Hann greiddi 157.500 krónur í sekt áður en hann hélt af landi brott morguninn eftir.

Annar erlendur ferðamaður sem var á leið að Flugstöð Leifs Eiríkssonar reyndist einnig hafa innbyrt umtalsvert magn áfengis og þurfi einnig að greiða 157.000 krónur í sekt.