Eykt bauð best í byggingu Stapaskóla
![nyr-skoli-i-dalshverfi](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2017/03/nyr-skoli-i-dalshverfi.jpg?resize=620%2C264)
Verktakafyrirtækið Eykt ehf. átti lægsta tilboðið í byggingu Stapaskóla í Dalshverfi í Innri-Njarðvík. Tilboð fyrirtækisins var jafnframt það eina af þremur sem bárust sem er undir kostnaðaráætlun Reykjanesbæjar. Útboðið var unnið í samstarfi við Ríkiskaup.
Eftirtalin tilboð bárust í verkið.
1. Eykt ehf.
kr. 2.454.644.358.-
2. Munck-Ísland
kr. 2.718.316.874.-
3. Mannverk ehf.
kr. 2.799.898.733.-
Kostnaðaráætlun kr. 2.587.082.547.-