Nýjast á Local Suðurnes

Lögregla lýsir eftir Wiktoriu

Lög­regl­an á Suður­nesj­um lýs­ir eft­ir Wikt­oriu sem ekki hef­ur skilað sér heim síðan í gær.

Í Face­book-færslu seg­ir að mögu­lega sé hún á Suður­landi eða í grennd við Sel­foss, en gæti þó verið í Reykja­nes­bæ. 

„Við biðjum ykk­ur að hafa hana í huga ef þið sjáið hana og hafa þá sam­band við okk­ur í síma 444-2299 eða í gegn­um 1-1-2,“ seg­ir í færsl­unni. 

Uppfært: Stúlkan er fundin heil á húfi, samkvæmt tilkynningu frá lögreglu.