Skjálfti að stærð 4,7 á Reykjaneshrygg – Hægt að fylgjast með skjálftavirkni í rauntíma
Jarðskjálfti að stærð 4,7 varð VNV af Eldeyjarboða á Reykjaneshrygg um klukkan 21:40 í kvöld, þá mældust skjálftar af stærð 3,8 austan við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga, á sama tíma og af stærðinni 3,1 og 3,3 á sama stað og einn af stærðinni 3.2 kl 21:57.
Jarðskjálfti að stærðinni 4,5 varð í Kötlu nú á ellefta tímanum í kvöld, en ekki er talið að tengsl séu þá millli skjálftans í Kötlu nú í kvöld og skjálftavirkninnar sem hefur verið á Reykjanesskaga í dag.
Hægt er að fylgjast með skjálftavirkni á vef Veðurstofunnar, nánast í rauntíma, en tölurnar sem þar birtast eru þó ekki staðfestar fyrr en síðar af sérfræðingum.