Nýjast á Local Suðurnes

Skoða hvort þörf sé á nýjum gervigrasvelli

Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í morgun að skipa fimm manna vinnuhóp til að kanna hvort þörf sé á nýjum gervigrasvelli í sveitarfélaginu og hvar best sé að staðsetja völlinn.

Bæjaráð skipaði Friðjón Einarsson, Gunnar Þórarinsson og Ingigerði Sæmundsdóttur í vinnuhópinn auk þess að óska eftir því að Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag og Ungmennafélag Njarðvíkur tilnefni einn nefndarmann fyrir hvort félag.