Nýjast á Local Suðurnes

Sumar verður að vetri í Reykjanesbæ

Íþrótta- og tómstundasvið Reykjanesbæjar vinnur nú að því að breyta vefnum Sumar í Reykjanesbæ yfir í vetrarvef, en vefurinn hefur að geyma upplýsingar um þær íþróttir og tómstundir sem í boði eru fyrir börn og unglinga í sveitarfélaginu.

Mikil ánægja var með vefinn í sumar, en áður en hann kom til hafði Reykjanebær gefið út bæklinga og vefrit um sama efni, öll uppfærsla á efni var því mun auðveldari og vefurinn “lifandi” í allt sumar.

Vinnan við uppfærsluna er á lokametrunum og óskar eftir Reykjanesbær eftir efni frá íþrótta- og tómstundahreyfingunni, bæjarbúum og stofnunum sveitarfélagsins um hvað er í boði fyrir börn, unglinga og fullorðna í Reykjanesbæ veturinn 2017-2018.

Senda má efni og mynd á netfangið: hafthor.birgisson@reykjanesbaer.is