Nýjast á Local Suðurnes

Vogar samþykkja flokkun sorps – Vilja bæta við þriðju tunnunni

Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga er samþykkt tillögu Kölku um að hafin verði flokkun sorps við heimili á starfssvæði stöðvarinnar.

Hugmyndir Kölku ganga út á svokallað tveggja tunnu kerfi, en bæjarráð Voga leggur jafnframt til að í útboðsgögnum verði gert ráð fyrir þeim möguleika að gera ráð fyrir þriggja tunnu kerfi eða eftir atvikum grenndargám fyrir plastúrgang í stað þriðju tunnunnar.