Nýjast á Local Suðurnes

Brynjar Atli og Ísak Óli léku með U17 landsliðinu í sigurleik gegn Færeyjum

Njarðvíkingurinn Brynjar Atli Bragason og Keflvíkingurinn Ísak Óli Ólafsson léku með íslenska U17 ára landsliðinu í 3 – 1 sigri gegn Færeyjum í gær.

Þetta var annar leikur liðsins á Norðurlandamótinu, liðið tapaði gegn Svartfjallalandi á miðvikudaginn 2 – 1 en þá var Brynjar Atli á bekknum en Ísak Óli í byrjunarliðinu, en var skipt útaf á 73. mínútu. Lokaleikurinn í riðlakeppninni er á sunnudaginn gegn Svíþjóð en leikið er í Finnlandi.