Kröfuhafar Reykjaneshafnar framlengja í fimmta skipti
![framkvaemdir-i-helguvik-2009](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/06/framkvaemdir-i-helguvik-2009.jpg?resize=620%2C264)
Kröfuhafar Reykjaneshafnar hafa samþykkt að framlengja greiðslufrest og kyrrstöðutímabil til og með 15. mars 2016. Þetta kemur fram í tilkynningu Reykjaneshafnar til Kauphallarinnar. Þetta er í fimmta skipti sem kröfurhafar framlengja, en skuldabréf Reykjaneshafnar voru upphaflega á gjalddaga þann 15. október.
Síðast var framlengt í sömu lánum þann 31. janúar síðastliðinn en þá var framlengt til 15. febrúar. Reykjanesbær er í ábyrgð fyrir umræddum skuldabréfum.