Grindavíkur-appið – Allt um Grindavík á einum stað

Nýtt GrindavíkurApp hefur verið tekið í notkun. Ungmennaráð Grindavíkur sá um undirbúnings- og hugmyndavinnu í samvinnu við Sigurpáll Jóhannsson forritara. Um grafík sá Gunnar Júlíusson.
Hægt er að nálgast appið í Play Store fyrir tæki sem keyra á Android-stýrikerfi og iTunes-verslun Apple. Hugmyndin að GrindavíkurAppinu kom á fundi Ungmennaráðs sem vildi fá aðgengilegt app fyrir Grindavík þar sem hægt væri að slá nokkrar flugur í einu höggi. Lagt var upp með eftirfarandi þætti:
• Viðburðir: Hafa gott yfirlit yfir alla viðburði í bænum. Hægt er að velja þá viðburði sem þú hefur áhuga á og applið lætur þig vita með fyrirvara svo þú gleymir þér ekki.
• Fréttir: Allir fréttir á heimasíðu Grindavíkurbæjar fara beint inn á appið.
• Stofnanir: Helstu upplýsingar um stofnanir í bænum. Aðgengilegt og þægilegt.
• Hafðu samband: Hægt að hafa beint samband við Grindavíkurbæ og stofnanir hans.
• Atvinna: Upplýsingar um atvinnu sem auglýst er hverju sinni.
• Samfélagsmiðlar: Geta farið beint inn á samfélagsmiðla sem tengjast bænum.
• Veður: Hvernig er veðrið í dag og næstu daga? Beintenging.
• Ferðaþjónusta: Þeir sem hafa áhuga að fara til Grindavíkur geta fundið helst upplýsingar um ferðaþjónustu í Grindavík
(beintengt við www.visitgrindavik.is).
• Bæjarmál: Þeir sem hafa áhuga á bæjarmálefnum geta fengið upplýsingar um skipan nefnda og fundargerðir.
• Samgöngur: Helstu upplýsingar um samgöngur til og frá Grindavík.
Dagskrá Menningavikunnar 12.-20. mars verður í GrindavíkurAppinu.
Appið verður í sífelldri þróun og því er mikilvægt að Ungmennaráðið fái viðbrögð svo hægt sé að lagfæra vankanta og einnig ef einhverjir eru með góðar hugmyndir til að hafa þarna inni.