Nýjast á Local Suðurnes

Styttist í að eldri borgarar fái niðurgreiddan mat á ný

Bæjarráð Grindavíkur hefur samþykkt drög að samningi við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja um áframhaldandi leigu á eldhúsi stofnunarinnar í Víðihlíð og falið bæjarstjóra að undirrita hann.

Þegar samningar eru höfn verður því hægt að halda áfram með tilraunaverkefni sem staðið hafði yfir frá því í febrúar þar sem eldri borgurum var boðið upp á heitan hádegismat á niðurgreiddu verði. Verkefnið hafði mælst vel fyrir, og úrræði vel nýtt, en ekki náðust samningar við HSS um áframhaldandi  leigu á eldhúsi til verksins og því var verkefninu hætt í júní síðastliðnum.