Fríhöfnin segir upp 62 starfsmönnum
Fríhöfnin ehf., dótturfélag Isavia, sagði upp 62 starfsmönnum í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
„Því miður er staðan þannig að fækkun starfsfólks er óhjákvæmileg,“ segir Þorgerður Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, í tilkynningunni.
„Útlit er fyrir að ferðamenn sem koma til landsins verði afar fáir næstu misserin og erfitt að spá fyrir um hvenær fer að horfa til betri vegar. Við hjá Fríhöfninni höfum gripið til ýmissa hagræðingaraðgerða frá því að heimsfaraldurinn hófst en því miður er staðan og útlitið verra.”